Enn ein bábiljan
Óáþreifanleg tilvera, sem er
svo sannarlega til. Án snertingar,
sjónar, bragðs eða heyrnar - ég er
þar, verð og var; í skynvilluflóði
ég drukkna þar og dey.
...eða nei,-ég lifi!!
Ég lifi, geng um & dafna í mistri
veruleikans en gleymi mér,
á meðan heimurinn heldur áfram.
Heimurinn, með sinni hlutlægu synd,
heftir mig & mína huglægu ímynd.
Form, mót og bygging mannsins,
sem mótast í þyrnum frelsarans kransi,
gefa mér góða mynd af tilganginum:
Að eiga\'í einingu staðfestu um að
í eilífðinni saman mega dansa um
og að elska Guð af öllu hjarta,
í auðmýkt trúa á hans krafta
-tvö, sem eitt, í faðmi frelsarans.
...áfram ég læðist í taktlausu
flæði, meðfram formlausri
vitund minni. Með vissu\'um að ég
snúi\'ekki aftur, ég upplifi í nóttinni
endursýningar drauma minna.
Ég er hættur að finna til.
Ég er hættur að finna fyrir skítugum
hvötum og hugsunum. Finn fyrir bata,
og horfi rólegur á heiminn fæðast í dauðann.
svo sannarlega til. Án snertingar,
sjónar, bragðs eða heyrnar - ég er
þar, verð og var; í skynvilluflóði
ég drukkna þar og dey.
...eða nei,-ég lifi!!
Ég lifi, geng um & dafna í mistri
veruleikans en gleymi mér,
á meðan heimurinn heldur áfram.
Heimurinn, með sinni hlutlægu synd,
heftir mig & mína huglægu ímynd.
Form, mót og bygging mannsins,
sem mótast í þyrnum frelsarans kransi,
gefa mér góða mynd af tilganginum:
Að eiga\'í einingu staðfestu um að
í eilífðinni saman mega dansa um
og að elska Guð af öllu hjarta,
í auðmýkt trúa á hans krafta
-tvö, sem eitt, í faðmi frelsarans.
...áfram ég læðist í taktlausu
flæði, meðfram formlausri
vitund minni. Með vissu\'um að ég
snúi\'ekki aftur, ég upplifi í nóttinni
endursýningar drauma minna.
Ég er hættur að finna til.
Ég er hættur að finna fyrir skítugum
hvötum og hugsunum. Finn fyrir bata,
og horfi rólegur á heiminn fæðast í dauðann.