Til ráðherra
Þú, þú ráðherra lands
er þín samviska hrein?
Og fílabeinsturn þinn,
frekar mannabein
úr hinum vinnandi manni
sem trúði þig á?
Þú sem mat okkur meinar
meðan tyggjum við strá.
Þú ert sekur að sanni
samviskulaus.
Svíkur sárt fólkið
sem að þig kaus.
Með þína vopnuðu verði
þú vanvirðir oss.
Rausar þinn rógburð
um rafbyssukost.
Viltu útskýra eitt
um efnahaginn,
eru varnarmál heldri
en öryrkinn?
Hvað með blíðu börnin,
blæðandi sár?
Í hverju felst vörnin
um ókomin ár?
Mig dreymir þig deyja,
að þú deyjir í bráð.
Tapir þínu trausti
þá\'er takmarkinu náð.
Verðir grafinn að vetri
í vellandi grút
og súpir seið þinna gjörða
af sjóðheitum stút.
er þín samviska hrein?
Og fílabeinsturn þinn,
frekar mannabein
úr hinum vinnandi manni
sem trúði þig á?
Þú sem mat okkur meinar
meðan tyggjum við strá.
Þú ert sekur að sanni
samviskulaus.
Svíkur sárt fólkið
sem að þig kaus.
Með þína vopnuðu verði
þú vanvirðir oss.
Rausar þinn rógburð
um rafbyssukost.
Viltu útskýra eitt
um efnahaginn,
eru varnarmál heldri
en öryrkinn?
Hvað með blíðu börnin,
blæðandi sár?
Í hverju felst vörnin
um ókomin ár?
Mig dreymir þig deyja,
að þú deyjir í bráð.
Tapir þínu trausti
þá\'er takmarkinu náð.
Verðir grafinn að vetri
í vellandi grút
og súpir seið þinna gjörða
af sjóðheitum stút.