Það var og
Hann álpaðist á fjöll, máttvana drengurinn.
Fjallasýnin; hávær - en í senn hljóð,
eins og svo oft áður í þessari hæð.
Eftir átökin, stökk pilturinn þyrstur í útisturtu:
Hugur hans tók á rás, fór því næst í flækju
og læstist í rembihnúti.
Svitnaði talsvert við áreynsluna,
er hann glímdi og barðist
miður fimlega við tröllvaxnar ákvarðanir.
Hvert skal hitastigið á vatninu vera?
spurði drengurinn sig í sífellu
og sneri hitablandaranum,
fram og til baka af áfergju.
Hann gat ekki ákveðið sig.
Fjöllin gláptu stjörf á.
Tóku svo eitt skref aftur á bak, frá átökunum.
Þau nötruðu, þeim hryllti svo við.
Vetrargamall snjór þaut spenntur niður hlíðarnar.
Vinir hans flykktust með.
Þeim langaði að skoða baráttuna betur.
Stráksi, enn óákveðin,
barðist um og öskraði æ!
Kaffærður í vináttu.
Fjallasýnin; hávær - en í senn hljóð,
eins og svo oft áður í þessari hæð.
Eftir átökin, stökk pilturinn þyrstur í útisturtu:
Hugur hans tók á rás, fór því næst í flækju
og læstist í rembihnúti.
Svitnaði talsvert við áreynsluna,
er hann glímdi og barðist
miður fimlega við tröllvaxnar ákvarðanir.
Hvert skal hitastigið á vatninu vera?
spurði drengurinn sig í sífellu
og sneri hitablandaranum,
fram og til baka af áfergju.
Hann gat ekki ákveðið sig.
Fjöllin gláptu stjörf á.
Tóku svo eitt skref aftur á bak, frá átökunum.
Þau nötruðu, þeim hryllti svo við.
Vetrargamall snjór þaut spenntur niður hlíðarnar.
Vinir hans flykktust með.
Þeim langaði að skoða baráttuna betur.
Stráksi, enn óákveðin,
barðist um og öskraði æ!
Kaffærður í vináttu.
06/08