Við
Ég geng um götur einn
vil ekki tala við neinn.
Ég er að verða of seinn
heim til þín.

Veistu hvað ég vil?
Ég vil ekki finna til.
Ég hvorki veit né skil,
hvað bíður mín

Það nær ekki nokkurri átt
að á einn eða annan hátt
þurfum við að lifa í sátt,
væna mín.
 
Guðjón Bjarni
1989 - ...


Ljóð eftir Guðjón Bjarna

Brottför
Ratleikur
Þú og ég
Við
Tregafullt ástarljóð með jólaþema, fullt af fortíðarþrá. (Manstu?)
Ástarsaga
Halelúja
Óróleg