Drottinn
Nú sé ég framtíð bjarta,
þú snertir mitt hjarta.
Þig hafa ég vil,
ávallt mér við hlið.

Þú fyrirgafst mínar syndir,
og sýndir mér myndir.
hvar er stödd ég var,
ekki vil ég vera þar.

ég ganga vil hreina veg þinn,
fremur en grítta veg minn.
hjá þér er ljósið bjarta,
kærleikurinn sem fyllir mitt hjarta.

ég bið þig,leiddu mína hendi,
svo á réttum stað ég lendi.
ó Jesú þú gefur mér,
allt það sem ég þarfnast.


 
Ágústa Kristín Jónsdóttir
1983 - ...


Ljóð eftir ágústu

afi kveður
til þín afi
vetur
Drottinn