Eðlilegt viðhald
Góður í að kjafta
klæða þig í uppgerðina
og lygina.

Góður í að kjafta
með sígarettu á milli varanna
fyrir framan cameruna.

Góður í að kjafta
spinna upp lygasögur
soga að þér reykinn
og aðdáun mína.

Helvítis kjaftaskur.
Slökktir á webcamerunni,
skreiðst uppí og fékkst drátt hjá konunni.

Á meðan starði ég á skjáinn:

\"this contact is offline\"

-hafði skilað hlutverki mínu, upphituninni.



 
Mistress
1974 - ...


Ljóð eftir Mistress

Eðlilegt viðhald
Fölsk fullnægja