Brúðurin
Svífa til jarðar, dúnmjúk og nett
snjókornin..jafnt og þétt
þau setjast á hár þitt
og krýna þig enn
brúði vetrarins.
Þau glitra og dansa við mánaskin
stjörnubjartan himininn
þau lokka og laða
og andlit þitt baða
þú brúður vetrarins.
Horfið er skrautið úr haddi þínum
er prýddi þig í vor
blómin horfin..liljan dáin
frosin lækjarskor.
Sumars þíns fegurð er horfin á braut
laufblöðin falli í móðurskaut
nú kiknar hvert strá
undan snjóþunga vetrar
trjágreinar slúta,hoknar og berar
bogna...að endingu brotna.
En svo dásemdar fljótt
kviknar líf þitt á ný
sól þín hækkar á lofti svo hlý
vermir og græðir sárin þín
klæðir þig fegurstu fötin í
hár þitt fær dáfagran lit sinn á ný
blómin skreyta þig aftur
gola sumars kemur hlý
og kyssir kinn þína
þú brúður sumarsins
(ljóð K.H.K)
snjókornin..jafnt og þétt
þau setjast á hár þitt
og krýna þig enn
brúði vetrarins.
Þau glitra og dansa við mánaskin
stjörnubjartan himininn
þau lokka og laða
og andlit þitt baða
þú brúður vetrarins.
Horfið er skrautið úr haddi þínum
er prýddi þig í vor
blómin horfin..liljan dáin
frosin lækjarskor.
Sumars þíns fegurð er horfin á braut
laufblöðin falli í móðurskaut
nú kiknar hvert strá
undan snjóþunga vetrar
trjágreinar slúta,hoknar og berar
bogna...að endingu brotna.
En svo dásemdar fljótt
kviknar líf þitt á ný
sól þín hækkar á lofti svo hlý
vermir og græðir sárin þín
klæðir þig fegurstu fötin í
hár þitt fær dáfagran lit sinn á ný
blómin skreyta þig aftur
gola sumars kemur hlý
og kyssir kinn þína
þú brúður sumarsins
(ljóð K.H.K)