Jónsmessunótt
Jónsmessunótt, þú mátt ei flýja frá oss,
fjöldinn þótt hylli þig með ys og gný.
Undranótt slík, þú átt að dvelja hjá oss,
eins og þú lifir fornum sögnum í.
Lækninganótt, með lyf í daggartárum,
ljósálfanótt, með dularbros á kinn,
minninganótt frá björtum æskuárum,
albjarta nótt, þig tignar hugur minn.
 
Ingveldur Einarsdóttir


Ljóð eftir Ingveldi Einarsdóttur

Jónsmessunótt
Vornótt