Hungurvekja
1 Og þess voru orð Guðs, sex skinkutegundir skaltu leggja inn um lauf jarðar, og sá sem svangur er hann mun saddur verða.
2 Þá kom spámaður í lambslíki, svaraði hann og sagði: hásæti skaltu gjöra við Subway Hringbraut, og munnur guðs mun snæða með þér kjötskinku satans.
3 Slátra mun hann satan í skinkubát, skaltu kaupa hann fyrir tuttugu silfurpeninga
4 og ég heiti því, að sjö konur munu dansa í kringum þig er þú bragðar á djúpsteiktri kjúklingabringu við hásæti Guðs.
5 Eta mun ég gullsoðinn lax af sólhvítu parmesanbrauði, og hann mun sprikla í maga mínum undir glitrandi stjörnum.
6 Ég hef ekki tíma til annars en að eta, drekk ég með því sumarblátt þingvallarvatn sem kjötbitarnir synda í eins og endur.
7 Ég beit í skinkuleggi nýlambsins, þegar BMT báturinn sigldi inn í óperuopinn munn minn
8 og í grænum salatkjól hló hið slátraða lamb innan um brauðfjöllin.