fiskað í gruggugu vatni
nú sitja menn
við drullupoll
og dorga
drafmæltir og benda
á hvern annan
hver veiðileyfið
eigi að borga
í pollinum synda
stórfiskar með
gljáandi maga
muna þeir feitir
ekki aðra eins daga
en þeir sem sitja
og þykjast veiða
fiska ekki neitt
því þótt færið sé úti
þá er engu á því beitt
við drullupoll
og dorga
drafmæltir og benda
á hvern annan
hver veiðileyfið
eigi að borga
í pollinum synda
stórfiskar með
gljáandi maga
muna þeir feitir
ekki aðra eins daga
en þeir sem sitja
og þykjast veiða
fiska ekki neitt
því þótt færið sé úti
þá er engu á því beitt