Söknuður
Sárar eru sorgir mínar
Svalt við kaldan mel
Hrímað þelið hjartans hlýnar
horfið heimsins hel
nú sofa allar ástir mínar
und jarðar hörðu skel.

Að elska er að missa allt
Sem ástina dreymir um
Sem döggvardropi drúpir kalt
Á mosans gljúpu grund
Einhvern daginn ástin mín
Mun ég aftur á þinn fund.
 
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir
1966 - ...


Ljóð eftir Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur

No. 21
Söknuður