Vinur sem kann að segja bless
Þurr þokan mjakast þreytulega
í átt að skömmustulegu skammdeginu,
sem liggur letilega ofan á borginni.
Þau eru vinir frá fornu fari.
Þokan ráfar um,
veit ekki almennilega hvert hún skal fara
en veit vel, að hún má ekki stoppa of lengi.
Hún er vinur sem kann að segja bless.