Hringhendur
Slátur sykrað gómsætt vil:
Sælan allra mesta.
Grátur heyrist, gimbur til
guðaheimsins besta.

Og öfugt...

Besta guðaheimsins til
gimbur, heyrist grátur.
Mesta sælan allra vil:
Gómsætt sykrað slátur

---

Hýða, berja, hengja, slást:
Hermenn nauðga konum.
Líða skortir lífsins ást:
Látnum jarðarsonum.

Og öfugt...

Jarðarsonum látnum ást
lífsins skortir, líða.
Konum nauðga, hermenn slást,
hengja, berja, hýða.  
Embla Rún
1986 - ...


Ljóð eftir Emblu Rún

Næturgyðja
Hringhendur
Stöku staka
Svona eru jólin...
Ástarjátning
Sprengjuregn