Sjálfsmorð
Ég veit að ég,
veld ykkur vonbrigðum.
Jafnvel þótt þið segið
það ekki.
Ég veit að ég er dónaleg.
Vond og jafnvel illkvittin á stundum
Ég veit að ég get verið erfið.
Ég veit að ég gæti oft staðið mig betur, bara fyrir ykkur.
Oftast vil ég það,
bara fyrir ykkur.
Ég veit að þið viljið skilja,
en þið bara getið það ekki.
Ég veit að hver dagur er helvíti,
með mig í þessum heimi.
Þannig ég kveð ykkur,
kveð ykkur í seinasta skipti.
Aldrei aftur þurfiði að vera vonsvikin eða reið, leið eða sár.
Aldrei aftur þurfiði að koma með afsakanir á hegðun minni eða eiga erfið samtöl við kennarana um það sem ég gerði rangt.
Aldrei aftur þarftu að horfa uppá örin á höndunum á mér, elsku mamma og hugsa hvað þú gerðir rangt.
Aldrei aftur þarftu að dæsa og horfa á mig vonsviknum augum, elsku pabbi og hugsa hvert litla telpa þín sé horfin.
Ég mun aldrei aftur gera mig að fífli fyrir framan skólafélagana. Eða sofa hjá röngum strák og eiga á hættu að verða ófrísk. Ég mun aldrei aftur ganga í skóla, hlæja með vinunum, brosa yfir góðum fréttum né gráta yfir vondum.
Ég mun hverfa, bara til að gleðja ykkur.

Elsku mamma og pabbi.  
Gíslunn
1994 - ...


Ljóð eftir Gíslunni

Ég man ei lengur
Bið
Strákar
Þar sem eitt sinn var.
Sorg
Minningar
Tómt
hjálp
Veturinn
Ástarorð
Vinir
Vinátta og vín.
Verndar engill
Ekki rétt
Farin
?
Vonbrigði
Pabbastelpa
Alveg að brotna
þú
Friður
Nótt
bla bla
ástarrugl
Ævilok
Segjum það bara
Ástfangið hjarta
Land fyrirheita
Ég er...
Ljóðið
Hjá þér
nr.1
nr.2
Gamall maður.
Íslenski Kreppusöngurinn!
Jólaljóð nr.1
Jólaljóð nr.2
Feimin
Fyrirgefðu
Þú sagðir...
Brotin hjörtu
Kalt
Sárt að sakna
Brotna barnið
Engillinn
Stúlkan
:)
Pyngja
Garg
Morð
Meitt og Myrt
Mannskepnan
Afhverju ...
Vetur
Gömul tíð
Sjálfsmorð
Erfitt það er.
Ástaróð
Fljúgðu
Þú
Lygar
Hvað gerðist?
Tilgerð
Takk fyrir allt.
Alltof seint.
Prinsessa
Ást
Systir
Sólríkur staður
Illska
Nú máttu slökkva.
Litla barnið
Ljóðalist
Elsku frænkur/ömmur
Uss...
Fíknin
Elskendur í æsku
Sjálfið mitt
Buguð.