Passíusálmur númer andskotinn og tvö
Í kvennaklefanum
er verið að fela konuna.
Og gagnkynhneigðir karlmenn hlaupa
í gegnum kvennaklefann
til þess að horfa á hana.
Það er blautt inni og sveitt,
en laugin er slétt og blá.
Þetta er lagleg kona
með mikil brjóst
og rökuð skapahár.
Og ókynþroska drengur með sundgleraugu segir við mig:
Skyldi konunni ekki leiðast
að láta kyngerva sig?
er verið að fela konuna.
Og gagnkynhneigðir karlmenn hlaupa
í gegnum kvennaklefann
til þess að horfa á hana.
Það er blautt inni og sveitt,
en laugin er slétt og blá.
Þetta er lagleg kona
með mikil brjóst
og rökuð skapahár.
Og ókynþroska drengur með sundgleraugu segir við mig:
Skyldi konunni ekki leiðast
að láta kyngerva sig?