Prinsessa
Kórónan situr enn á höfðinu,
þótt hárið sé í rugli.
Andlitsfarðinn allur runninn,
og kjóllinn rifinn.
Augun sokkin, blóðug vör.
Raspað hné og marin öll.
Hællinn brotinn á öðrum skó
og á sokkabuxum lykkjufall.
Allir reyna að tala við þig,
fá uppúr þér hvað gerðist.
Það eina sem þú svarar er
"það skiptir ekki máli"
En við vitum betur.
Þú brosir feimnislega,
lagar þig til.
Þarft að láta sem ekkert sé,
mundu..þú ert prinsessa!
þótt hárið sé í rugli.
Andlitsfarðinn allur runninn,
og kjóllinn rifinn.
Augun sokkin, blóðug vör.
Raspað hné og marin öll.
Hællinn brotinn á öðrum skó
og á sokkabuxum lykkjufall.
Allir reyna að tala við þig,
fá uppúr þér hvað gerðist.
Það eina sem þú svarar er
"það skiptir ekki máli"
En við vitum betur.
Þú brosir feimnislega,
lagar þig til.
Þarft að láta sem ekkert sé,
mundu..þú ert prinsessa!