Hafðu það gott,
-Sömuleiðis mín álfamey,
handan rúms og tíma -
ég skilaboð fékk á síma.
Hvenær munum við dansa,
stansa til að dansa
í myrkrinu,
í húminu
í skúmaskotinu
í rúminu?
en ekki tala sakleysislega
yfir víni
konungur djöflanna,
drottnari mannanna,
vargurinn,
ótti minn,
sem bindur mér helskó
og þyrnikórónu
hve lengi þarf ég að bíða?
handan rúms og tíma
handan rúms og tíma.
-Drottning undirheimanna
ég bara spyr.
handan rúms og tíma -
ég skilaboð fékk á síma.
Hvenær munum við dansa,
stansa til að dansa
í myrkrinu,
í húminu
í skúmaskotinu
í rúminu?
en ekki tala sakleysislega
yfir víni
konungur djöflanna,
drottnari mannanna,
vargurinn,
ótti minn,
sem bindur mér helskó
og þyrnikórónu
hve lengi þarf ég að bíða?
handan rúms og tíma
handan rúms og tíma.
-Drottning undirheimanna
ég bara spyr.