Upprisa skúffuljóðsins
Ljóðið gekk um í gær
í bókabúð máls og ómenningar
í nótt sótti það að hálsi mér
og drakk í sig blóð
upprisið hvítt og svart
með blóðgaðar tennur
nú gengur það um í skjóli nætur
og dreypir af draumum
skelfingu lostið við dagsljósið
dregur það sig í næstu skúffu
í bókabúð máls og ómenningar
í nótt sótti það að hálsi mér
og drakk í sig blóð
upprisið hvítt og svart
með blóðgaðar tennur
nú gengur það um í skjóli nætur
og dreypir af draumum
skelfingu lostið við dagsljósið
dregur það sig í næstu skúffu