Yndið dýpsta
Ást er ei með upplit hýrt
oft vilja bogna sálir.
Freistingarnar fá því stýrt,
farnir vegir hálir.
Í fæturna ei fæ ég takt,
friðlaus magnast spenna.
Oft er mikið á sig lagt
er menn leita kvenna.
Yndið dýpsta auðnan ber
ástarleikir sleppi sér
en er þú vaknar upp af dvala
er ekki um neitt að tala.
oft vilja bogna sálir.
Freistingarnar fá því stýrt,
farnir vegir hálir.
Í fæturna ei fæ ég takt,
friðlaus magnast spenna.
Oft er mikið á sig lagt
er menn leita kvenna.
Yndið dýpsta auðnan ber
ástarleikir sleppi sér
en er þú vaknar upp af dvala
er ekki um neitt að tala.
Ort 2011