Gárungar sér gamna
Gárungar sér gamna,
gefa anda góðan.
Vizku fyrir velta,
svo vitleysur upp gelta
og hefja’ upp heiminn yfir það sem hann er.
„Allt á öllu veltur
öðru, sem er ei.
Andrá virðist engin;
ekkert fyrir fengin.“
Um leið er vegurinn lengri en augað sér.
---
En lokaorðin eru ljúf,
láta ekkert undan:
Alsæla andans;
allt’annað til fjandans,
og efnið í algleymið á endanum fer.
Áfram þó allt heldur,
ekkert skal úr skorðum.
Líf munu lifna,
ljós munu kvikna,
því alltaf mun ferlið endurtaka sitt kver.
gefa anda góðan.
Vizku fyrir velta,
svo vitleysur upp gelta
og hefja’ upp heiminn yfir það sem hann er.
„Allt á öllu veltur
öðru, sem er ei.
Andrá virðist engin;
ekkert fyrir fengin.“
Um leið er vegurinn lengri en augað sér.
---
En lokaorðin eru ljúf,
láta ekkert undan:
Alsæla andans;
allt’annað til fjandans,
og efnið í algleymið á endanum fer.
Áfram þó allt heldur,
ekkert skal úr skorðum.
Líf munu lifna,
ljós munu kvikna,
því alltaf mun ferlið endurtaka sitt kver.