Leitin að skósóla vestursins
Mér sýnist austur stundum vera vestur.
Og ég stama kannski, en Nökkvi er góður hestur
Þó maðurinn virðist vera' í máli blestur,
þá er Nökkvi alltaf jafn hress og góður hestur.
Það er kadiljákur á hvolfi' útí skurði við vegkannt - útklesstur
en Nökkvi er enn frár og sprækur hestur.
Á hótel jörð er sérhver maður gestur
og Nökkvi, hann er æðislegur hestur.
Þjálfun er nauðsin ef þú vilt verða bestur
þess vegna er Nökkvi svona hraðvirkur hestur.
Ef fyrir finnst einhver manna mestur
mun hann Nökkvi án efa vera mikið betri hestur.
Skordýraplágur og uppskerubrestur…
En Nökkvi er alltaf jafn sprækur hestur.
Bábylju upp bullar blindfullur prestur…
en Nökkvi, hann er geðveikt flottur hestur.
Þú vilt fá hrós en uppskerð aðeins lestur…
Samt sem áður er Nökkvi frábær hestur.
Og ef þér fæst ei lengri skila-frestur
fáðu Nökkva í málið, því hann er góður hestur.