Vináttan
Hvar sem þú lendir,
hvar sem ég er,
þú mátt leita til mín.

Hvað sem þig hendir,
hvert sem ég fer,
ég mun hugsa til þín.

Lífið ýmsar senur sendir
sem ei alltaf fara vel.
Þó er allt sem til þess bendir
að þú eigir vinaþel.
Á öllu verður góður endir
allt er gott sem endar vel.  
Valgerður Þorsteinsdóttir
1987 - ...


Ljóð eftir Valgerði Þorsteinsdóttur

Manstu það?
Vináttan