Sundferð
Rukkaður um hundraðkall í sund.
Labbaði samt inn á Faktorý í gær,
án þess að vera beðinn um skilríki.
(Þrátt fyrir skeggvöxt sem minnir á kíví.)
Ég hafna öllum viðmiðum og gildum
og fer ekki úr skónum áður en við
göngum inn í búningsklefann.
Við berum okkur saman
og berum okkur svo saman.
Ég tapa...
svo ég þarf að bera hann í sturtu
og bera svo á hann sápu.
Þó sturtan hafi verið gullin
er veðrið úti grátt, sem þýðir bara eitt -
engar guggur á svæðinu;
einungis einstæðar mæður
og skeggjaðir Þjóðverjar.
Mér líður illa eftir gærkvöldið,
því ég borðaði kvöldmat gærkvöldsins
afturábak fyrir framan stelpuna
sem ég er skotinn í.
Ég fer því út í stóru laugina að synda
í von um aflausn minna synda.
Og þegar ég kem loksins upp úr
er ég nýr maður.
Labbaði samt inn á Faktorý í gær,
án þess að vera beðinn um skilríki.
(Þrátt fyrir skeggvöxt sem minnir á kíví.)
Ég hafna öllum viðmiðum og gildum
og fer ekki úr skónum áður en við
göngum inn í búningsklefann.
Við berum okkur saman
og berum okkur svo saman.
Ég tapa...
svo ég þarf að bera hann í sturtu
og bera svo á hann sápu.
Þó sturtan hafi verið gullin
er veðrið úti grátt, sem þýðir bara eitt -
engar guggur á svæðinu;
einungis einstæðar mæður
og skeggjaðir Þjóðverjar.
Mér líður illa eftir gærkvöldið,
því ég borðaði kvöldmat gærkvöldsins
afturábak fyrir framan stelpuna
sem ég er skotinn í.
Ég fer því út í stóru laugina að synda
í von um aflausn minna synda.
Og þegar ég kem loksins upp úr
er ég nýr maður.