Að beisla gandinn
Eftir að smalinn
með hundafælnina
útskrifaðist sem sálgreinir
dreymdi hann stundum
á langri starfsævi
að á bekknum sæti
maður með hundshöfuð
og röflaði um fjármál
og bælda brunahana
en tuðaði inn á milli
um köku hans og jólin
og ráfaði um eins og hirðfífl
svo hann varð að skipa honum
að setjast aftur niður.
En það eina sem sálgreinirinn
teiknaði í skrifblokkina
í þessum drottningarviðtölum
var beinlínis lína úr beinum
og kom honum á óvart hvernig
sú lína gæti verið bein.
Eflaust vegna
kynferðislegrar bælingar
um gand álfadrottningar
og klámuga gleðistrengi
sem einhver var að snerta.
Ekki merkileg fullnæging það.
En hvar var drottningin núna?
Svona lét hann hugann líða.
Eftir þetta fékk hann
svipaða tilfinningu
og ólétt lauslæti fær þegar
vænsti verðlaunaklárinn
ríður hjá með gullpeninga
að smala fé á mánaðarlaun sín
og hann fattaði að hann hafði
hundsað manngreyið á bekknum,
sem varð smám saman allur að hundi.
Eftir viðtalið borgaði
fjárhundurinn einungis
í hermannlega bornum hringjum
og látúnshálsgjörðum,
en gelti síðan undarlega
digurlegum róm á leiðinni út
eins og rámur skotveiðihundur
svo hann vaknaði yfirleitt
með gæsahúð og illa fengið holdris.
með hundafælnina
útskrifaðist sem sálgreinir
dreymdi hann stundum
á langri starfsævi
að á bekknum sæti
maður með hundshöfuð
og röflaði um fjármál
og bælda brunahana
en tuðaði inn á milli
um köku hans og jólin
og ráfaði um eins og hirðfífl
svo hann varð að skipa honum
að setjast aftur niður.
En það eina sem sálgreinirinn
teiknaði í skrifblokkina
í þessum drottningarviðtölum
var beinlínis lína úr beinum
og kom honum á óvart hvernig
sú lína gæti verið bein.
Eflaust vegna
kynferðislegrar bælingar
um gand álfadrottningar
og klámuga gleðistrengi
sem einhver var að snerta.
Ekki merkileg fullnæging það.
En hvar var drottningin núna?
Svona lét hann hugann líða.
Eftir þetta fékk hann
svipaða tilfinningu
og ólétt lauslæti fær þegar
vænsti verðlaunaklárinn
ríður hjá með gullpeninga
að smala fé á mánaðarlaun sín
og hann fattaði að hann hafði
hundsað manngreyið á bekknum,
sem varð smám saman allur að hundi.
Eftir viðtalið borgaði
fjárhundurinn einungis
í hermannlega bornum hringjum
og látúnshálsgjörðum,
en gelti síðan undarlega
digurlegum róm á leiðinni út
eins og rámur skotveiðihundur
svo hann vaknaði yfirleitt
með gæsahúð og illa fengið holdris.