Nýr kafli
Hættu að gráta
Það þýðir ekki neitt
Þetta er svo búið
Þú getur engu breytt

Ástin er farin
Og kemur ekki aftur
Farðu að vinna í þér
Þar er innri kraftur

Horfðu inná við
Og elskaðu það sem þú sérð
Þú getur allt sem þú vilt
Því þú ert úr stáli gerð

Losaðu þig við fólkið
sem dregur þig niður
Það er ekki þess virði
Því miður...
 
Chilly
1988 - ...
11. Október 2011


Ljóð eftir Chilly

Nýr kafli
Breytingar
Æskan
Ex