Lofsöngur til lífsins
Mig langar lofsöng að yrkja
til lífsins sem mig ól
því nú á ég heiðríkju hugans
og hjarta sem aldrei kól

Því lífið er eilífur leikur
og lífið er eilíft og sterkt.
Ég lifi í lífinu miðju
og lífið er kraftaverk.  
Ásdís Jóhannsdóttir
1933 - 1959
Júlí 1958

Úr bókinni <a href="mailto:mstef@li.is?subject=[Pöntun]: Vængjaþytur vorsins">Vængjaþytur vorsins</a>.
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi, 2002.
Allur réttur áskilinn systkini höfundar.


Ljóð eftir Ásdísi Jóhannsdóttur

Lofsöngur til lífsins
Við skál
Kysstu mig
Óskahallir