Ljóðskáld
Ljóðskáld eru námumenn
sem grafa í sálir sínar.
Höggva og höggva þar til senn
hugar þeirra dvína.

Bíður þeirra gimsteinn sá
sem situr afar bjartur.
Mun ljómi hans verða tungumál
þeirra er reyna aftur.

Daglega blasir við þeim sjón
svo fögur að gasið breytist fljótt
úr skaðlegri martröð í heimsins ljóð
sem aðrir líta á sem eilífa sótt.

Upp úr heimi kaldra kola
koma þeir með námuvagn.
Ber hann marga gullmola.
Margir hverjir eru agn
sem tæla menn í námuheiminn
er fáir fá að sjá líkt og geiminn.

 
Arnar
2003 - ...


Ljóð eftir Arnar

Ljóðskáld
Hrúðurkarlar