Eggert Ólafsson
Þrútið var loft og þungur sjór,<dd>þokudrungað vor.
Það var hann Eggert Ólafsson,<dd>hann ýtti frá kaldri Skor.
Gamall þulur hjá græði sat,<dd>geigur var svip hans í,
hann mælti við Eggert Ólafsson:<dd>?Mér ógna þau vindaský?.
?Ég sigli' ei skýin, ég sigli sjá!?<dd>svaraði kappinn og hló.
?Ég trúi á Guð, en grýlur ei,<dd>og gleð mig við reiðan sjó?.
Gamall þulur frá græði hvarf,<dd>gegndi með þungri lund:
?Þú siglir ei þennan sjó í dag,<dd>þú siglir á Guðs þíns fund?.
Það var hann Eggert Ólafsson,<dd>hann ýtti frá kaldri Skor,
vindur upp segl og sjálfur við stjórn<dd>settist með formanns þor.
Knúðu rastir knerrir tveir,<dd>komið var rok um svið.
Síðasti fugl úr fjarri Skor<dd>flögraði' á vinstri hlið.
Á búlkanum situr brúður ung,<dd>bleik var hin göfga kinn:
?Ó, Guð! sú báran er brött og há,<dd>hún brotnar í himininn inn!?
?Hækkið þið seglin!? hetjan kvað,<dd>en Helja skjótari varð.
Boðinn skall yfir bárumar -<dd>í búlkann var komið skarð.
Það var hann Eggert Ólafsson,<dd>frá unnarjónum hann stökk,
og niður í bráðan Breiðafjörð<dd>í brúðarörmun sökk.
?Það var hann Eggert Ólafsson?<dd>- Íslands vættur kvað -
?aldregi græt ég annan meir<dd>en afreksmennið það?.
Ef þrútið er loftið, þungur sjór<dd>og þokudrungað vor,
þú heyrir enn þá harmaljóð,<dd>sem hljóma frá kaldri Skor.