Kvikmynd á rúðu
Regnið bylur á rúðunni
með stanslausum err hljóðum,
droparnir leika sér með ljósið úr fjarskanum,
fanga það.
Hugfanginn fylgist ég með doppóttu og rákóttu útsýninu
renna letilega niður glerið.  
Gaukur
1957 - ...


Ljóð eftir Gauk

Kvikmynd á rúðu
Lítil brot um tímann
Leyndardómur hjartans