Sumar ástir endast ekki
Ef ég ætti gull og græna skóga
gæfuríka framtíð þér við hlið.
Alltaf ætti ástarelda nóga
en ást þína eina ég um bið.
Ljóssins vegur ávallt okkur leiði
gegnum lífið ferðumst hönd í hönd.
Ástin fylgir hverju aldurskeiði
okkar haldi ávallt tryggðarbönd
gæfuríka framtíð þér við hlið.
Alltaf ætti ástarelda nóga
en ást þína eina ég um bið.
Ljóssins vegur ávallt okkur leiði
gegnum lífið ferðumst hönd í hönd.
Ástin fylgir hverju aldurskeiði
okkar haldi ávallt tryggðarbönd