Dóttir mín 2
Ég sé þögulan sársaukann
í augum þínum,
velti því fyrir mér
hvað get ég gert eða sagt?
til að lina kvalið hjarta þitt.
Mig langar að næra
sál þína með kærleik,
sem vex af ljósi og bæn
um bjarta framtíð
þér til handa.
Stigin úr púpunni
viðkvæm,eins og vængir
fegursta fiðrildis,
þessarar jarðar
sláttur þeirra er hjarta þitt.
í augum þínum,
velti því fyrir mér
hvað get ég gert eða sagt?
til að lina kvalið hjarta þitt.
Mig langar að næra
sál þína með kærleik,
sem vex af ljósi og bæn
um bjarta framtíð
þér til handa.
Stigin úr púpunni
viðkvæm,eins og vængir
fegursta fiðrildis,
þessarar jarðar
sláttur þeirra er hjarta þitt.
1999