Í dögun
Hendurnar byrgja náfölt
andlit
þvöl augnhárin vísa
í allar áttir
vot rúmklæðin vafin
um krepptar fætur
hversdagslegt hljóð
vekur litla athygli
en þó
kannski bréfið sé að koma
sem ég aldrei sendi.  
Ómar Sigurjónsson
1960 - ...
Áður óútgefið. 1995.
Allur réttur áskilinn höfundi.


Ljóð eftir Ómar Sigurjónsson

Í dögun
Hið óorta ljóð