Dýrðleg vissa..
Hve dýrðleg er sú vissa
að vita að Jesús er
sá vinur sem á himnum
biður fyrir mér.
Hann fyrirgefur misgjörðir
sjúka læknar sál.
Hann sér og skilur ávallt
hin leyndu hjartans mál.

Hann elskar, mig Hann elskar
Hann elskar mig svo heitt.
Hann veit hvað hjartað þráir
og synjar ekki um neitt.
Hann frá mér voða víkur
og vota þerrar brá
ég veit um eilífð alla
ég uni Jesú hjá.

Kristrún Soffía Jónsdóttir  
Hrund Erl.
1989 - ...
Ljóð eftir systur langömmu minnar.. rosalega flott..:D


Ljóð eftir Hrund Erl.

Hestbak..
Dýrðleg vissa..