Vagninn (ljóðræn örsaga)
...konan hallar sér að manninum á afskekktri strætóstoppistöð og hvíslar undurlágt í eyra hans. heit ástarorð, loforð um nýjabrum í kynlífinu og ferskleika í matreiðslu. maðurinn brosir, hallar sér að konunni til baka, lofar hreinleika í bílskúrnum, alnuddi á kvöldin og rósum á fimmtudögum. þau brosa. í bland við fögur fyrirheit og rómantík í loftinu svífur fersk kvöldgolan um hörund þeirra, svo þau hjúfra sig saman og halda í sér hita. strætisvagninn kemur eftir fimmtán mínútur en þeim finnst það of stuttur tími. þau vilja gleyma sér í faðmi hvors annars og ímynda sér að giftingarloforð þeirra verði loksins að veruleika.
...strætisvagninn kemur. á rúðunni sést lítill feitlaga krakki fletja nef sitt á henni og glápa opinmynntur á parið haldast hönd í hönd inn í vagninn. hann er aðeins tólf ára gamall, hefur séð sitthvað á þessum fáu árum og hefur fetað sín fyrstu spor á lífsbrautinni. foreldrar hans hafa skilið að borði, sæng og börnum, kuldi ríkir í ættinni gagnvart honum, því einkunnir hans og líkami hafa bæði hrapað síðustu mánuðina. hann finnur ekki rómantíkina í loftinu, kvöldgoluna sem skríður ísköld inn í vagninn, né hlýjuna í hjartanu. hann veit að ástin mun aldrei endast. ást sem hann mun aldrei fá.
...bílstjórinn brosir breitt við andlitum turtildúfnanna. hann veit fyrir víst að þau munu fara heim, kveikja á kertaljósum, hlusta á huggulega tónlist og elskast á þann hátt sem hann sjálfur hafði gert forðum. ekki lengur. í huga hans kemur upp minning um ljóshærðu konuna, konuna sem vaknaði upp með honum á morgnana, kyssti hann svo ofurljúft, lagaði örin á hjarta hans og gaf honum allt sem hún átti. allt það stutta líf sem hann endaði sjálfur eina kalda haustnóttina. lítið tár í hvörmum hans kólnar og rennur út kinnina í kvöldgolunni. hann þurrkar það af og harkar sorgina af sér. keyrir enn og aftur af stað út í kólnandi haustnóttina. sömu nótt og áður.
...strætisvagninn rennur ljúft áfram. byggingar þeysast fram hjá og einstaka tírur berjast veikar við myrkrið sem hratt skellur á. díselfnykur vagnsins hverfur í fjölbreyttri lyktinni af hinum farþegunum, ilmvatnslyktinni af dömunni fyrir framan, hestafnyknum af gamla karlinum til vinstri og andremmunni af skrifstofumanninum fyrir aftan. öll eru á leiðinni heim. heim til konu og barna, heim í kakó og tertur, heim í einmanalega íbúð eða heim til ókunnugs daðrara.
...ég horfi á háls fögru konunnar fyrir framan mig. hár hennar er ljóst og liðaðir lokkarnir eru bundnir saman í gylltum kambi. hún snýr sér við og brosir við mér. opnar munninn og segir undursamlegri röddu: ?ég var hérna líka fyrir 40 árum?.
...skyndilega breytist bros hennar í angurværan svip, hrukkur sem voru ekki áður dýpka og setja svip sinn á þetta sorgmædda og fagra andlit. hún snýr sér við og horfir fram í vagninn. döpur ýtir á bjölluna og stendur varlega upp. aflvana gengur hún áfram, á stirðum og viðkvæmum fótum, kyssir bílstjórann létt á kinnina, stígur út í myrkrið og hverfur.
...sé að parið er byrjað að kyssast og strákurinn farinn að spila leik í nýja gemsanum sínum. gamli hrossabóndinn og andfúli skrifstofumaðurinn hafa horfið en ég sit hugsi og kaldur eftir. kvöldgolan hefur aukist til muna síðustu andartökin og framkallað frosttár í hvörmum mínum...
...síðustu andartökin fyrir slysið heyrði ég auman grátur fremst úr bílnum. svo man ég ekki meir...
 
Daníel Páll Jónasson
1982 - ...


Ljóð eftir Daníel Pál Jónasson

...fögur er hlíðin
Von? (fyrri hluti)
Von? (seinni hluti)
Trúarinnar niðurbrot
Víma III - Ástfangi engils
Norðurljósablik
...útlagi hjarta þíns
Augað á himnum
Villtur í alsæluþoku
Kveðja
Í skýjunum lifa gamlar minningar
Hjörtu úr steini
Veröld heyrið minn óð: "Það er vargöld; trítilóð!"
Heijhalehúbba [búbba] þessa heims - kvæði
...ég vildi að þú værir hér...
Rómeó og Júlía
Lifandi verur...
Sonur
Hrokagikkur
Draumráðningar
furðuleg kímnigáfa drottins
...þetta er nú enginn heimsendir!
...handan sýningartjaldsins
Ljúfasta Stund Danna
ef ég...
Naglfarið nálgast / Ragnarökkur
...skildu ungbörnin hugsa líkt og við?
Þægilegur dofi
Flóð
Reykelsið brennur út...
Væmið ástarljóð?
Upp og niður sálarkvarðann...
Martýr
Skyggnst á bak við grímuna
Langanir blóðsins
Frostþoka
Víma II
Fótspor í grasinu
Einnota
Fastur í skriðu
Dögun dagur kvöld og nótt
tónleikar
Komið út úr skápnum...
Guð er bóndi
veðursins værukærð
Mettaður af menntuðu metnaðarleysi
Fullir strákar keyra betur
Myrkurskin
Sannir persónuleikar
Að eilífu eilífi
Antikristur II
Víma IV - Lokapartur
Spegilbrot
Líkamsleifar
Víma I
Gítarglamur
Sifjaspell nútímans
Atlas
Dolli dropi er morðingi
Tearing down my own hills
Hinn harðráði einvaldur (prófkvíðinn)
Vindlar og eðalvín
útgangur
þegar kvöldið kemur...
Boðorðatöflurnar brotnar!
Veggur
Hvað er svo smátt?
Sýndu mér...
Náttúrustjórnun?
Í faðmi þér
Barnið
Stundarleiði
Sveitaþorpið
Þegar náttúran fer á flakk...
Í lífi sérhvers manns
Blóðrautt sólarlag
Blinda stelpan með sýnirnar
Stiginn sem liggur upp skýjanna bláma
Faðmar
Sálfræðimeðferð að hausti 2002
Olía
Dagbók hins dauða I og II (kómísk smásaga)
Sjálfur
Brúin milli bókar og reynslu
Sjómannsins sýnir og sorgir
Faðir, sonur og stríð
Bagatellovindlar og ódýr Heineken
orðleysi [aldrei nógu gott ástarljóð]
Innrás hér - innrás þar - innrás alls staðar
Bóhe[i]mskur
\"Skartgripur\"
Kristalstár
Sekúndur
Fasisti
Heimur á Heljarþröm
Segull
Anarkismi
Minning um gest
Lokastans: Helvíti
Ég er Satan
Andlitslausar rósir
Líf sem leynist í hnotskurn
Frostbitinn
Reykjavíkursumarnætur
Guð minn...?
Í greipum
Vagninn (ljóðræn örsaga)
Myrkur á Mánafold
Tími til kominn...
Sjálfsskoðun við hafið
Varnaðarorð um hinstu lausn
Ljúf óvissa
Hjarta úr steini hittir hjarta úr silki
Milljón stykkja púsluspil
Morðið á sjálfinu
3 orð
Eyðimerkursandur
Kæri guð...
Fl...ótti
Sál til sölu!
Bænastund að nóttu
Heimsókn Freud í Aldingarðinn
Ferðalok
Gangnamunninn
Rósarrætur
...og vernda oss frá öllu illu?
Minningastraumur
Myndbandstæki
Óskemmtileg pæling á flöskudegi
Sjálfsafneitun
Undir votu þakinu
Örlög gullfisksins
2 ára afmæli Kveðju
Tekist á við ljóðafíknina
Hearts of stone
Ástfangi fyrir lífstíð
Ársuppgjör forstöðumanns sálarinnar (21. árgangur)
Tímavél fyrir geðsjúklinga
Saklausar sálir í réttu ljósi?
Hetjur himinhvolfana
Veikburða vonir við uppgjöf
Ringlaður líkami við fullnægingarstig (lagatexti)
Afskiptalaust örverpi örlagastjórnenda
Örin eftir örvarnar
Til hvers að halda þessu áfram?
Vonin úti / Vonin inni
Leitarflokkur
Hjátrúaróskir
Vængbrotinn
Svartnættisganga
Úlfur! Úlfur!
Ástarljóð í febrúar
Ekkert breytist með nýjum degi
Febrúarleiði
Handan fagurra fjalla
Innilokaður
Einkamáladálkurinn
Sál sem á heima í skipum
Norðurljósaró
Villtur í vansæluþoku
Dráttarvon
Uppáþrengjandi minningar
Ekkert eftir handa þér
Rómantísk kvöldstund
Vildi að þú gætir...
"Hetjan"
Nauðgun
Úr dagbókum
Í rjóðrinu
Býflugurnar og blómin
Angurvær sálarsóló
Saklausar sálir í réttu ljósi? (II. hluti)
Sjálfsvorkunnar iður
Password
Baba, baba... Danni vera aaaaa við bangsa!
Ó sjá! Hina tilbúnu fegurð!
Kolvitlaus forgangur
Sadómasókismi Drottins
Gráðugur fjandi í Satans landi
Ég stend á skýi
Þegar ég uppgötvaði tilgang lífsins
Opið bréf til Ariel Sharon
Fastur í ríki Bakkusar
Dyramotta
Ein stór fjölskylda
Eitthvað fagurt
Forleikur fyrir ástarsorg
Hellir
Hyldýpið
Inner gates (enskur þungarokkstexti)
Má blóta hérna?
Klisjukenndu ástarlögin
Nostalgía
Með stjörnur í augum
Stríðnispúki
Fastur í fíkn
Veiðisagan
Gæti ég, gæfi ég
Egósentrísk hugleiðing hjá letingja
Klaufinn hann Amor
Athyglisverð hugleiðing á röngu augnabliki
Skítkast
Orða[sann]leikur
Einn af þeim
Endurfæddur
Stjörnur í augum
Farðu til fjandans (endurgerð)
Hvenær?
Talað við spegilmynd
Til hennar
Drottinn elskar nörda
Still lovin\' you
www.god.hvn
Pervertískur syndaselur við Himnaríkis gátt
Kæfðar hugmyndir
Síðasti farfuglinn
Hreingerning óskast
Kúkur
Svanasöngur ljóðskáldsins
Annars konar bæn
Preaching Atheist
Talsmaður Móður Náttúru
Vetur nálgast
Uppistöðulónið
Enn fleiri játningar
Ennþá?!
Meltingarvegurinn
Á bak við tjöldin
Handan grárrar móðu
Í dvala
Þegar strengirnir þagna