HRÍM.
Ég horfi inn í hjarta mitt
HRÍMKALLT hugarangur
þitt var mitt og mitt var þitt
þar endar lífsins gangur.
Allt sem átti ég með þér
andartak í leyni
hjartað sundurbrotið gler
ég græt, þér aldrei gleymi.
Ef ég ætti leyndarmál
enn það myndi snúast
allt um þig og þína sál
það mér þætti ljúfast.
ALLT tekur enda "efalaust"
ein um veginn reika
sumar kveður,komið haust
kærleiks hætt að leita.
HRÍMKALLT hugarangur
þitt var mitt og mitt var þitt
þar endar lífsins gangur.
Allt sem átti ég með þér
andartak í leyni
hjartað sundurbrotið gler
ég græt, þér aldrei gleymi.
Ef ég ætti leyndarmál
enn það myndi snúast
allt um þig og þína sál
það mér þætti ljúfast.
ALLT tekur enda "efalaust"
ein um veginn reika
sumar kveður,komið haust
kærleiks hætt að leita.