Þekki þig.
Ég held ég skynji
þig.
Viti hver þú ert.
Þekki huga þinn.
Skynja vonir þínar
og þrár.
Ótta þinn, hræðsluna.
Finn undirtóninn.
Leitina og lífsþorstann.
Kraftinn.
Ég þekki og skil,
hikið og óstignu sporin.
Ég sé blíðuna, fordómaleysið.
Þrjóskuna, já og afneitunina.
Ég skynja skil og þekki
þig
held ég !?  
Bylgja
1962 - ...


Ljóð eftir Bylgju

Manstu !?
Já þú
Rósa frænka.
Þekki þig.