Þula-bula (endurbætt) Vegan lesendabréfs í Velvakanda um ljóð ´ruglukolla og hortittasmiða´...
Allt frá dögum Egils
íslensk ljóðagerð
stuðluð!
skrifar Guðmundur
Nú barasta
allt til hópa
ruglukollar
hortittasmiðir
kjaftaþruglarar
Og ÞETTA birtir Mogginn!
Suss og svei!
--
Laxness var óþekkur
Shakespeare einnig
stuðluðu
harla lítið sem ekki neitt
Ég
ljóðskáld
innan gæsalappa
horfi á þessi háu tré
án laufa
vetur
þau bifast til og frá
(kannski má ekki segja bifast?
Haglél skellur á bárujárnið
það er gott að vera innandyra
geng fremur eirðarlaus
um hús mitt
grasekkjan
set upp gluggatjöld
þakin blómum
vermandi
Það er bara ekki hægt að bjóða upp á vond ljóð!
segir Gerður Kristný
Elísabet Jökuls
mæðist í mörgu
segir margt
vill bjarga svooo mörgu
Bónusljóð Andra Snæ aftur!
þrjátíu prósent meira
sama bleika svínið komið enn
(ekki Andri, hann hef ég þekkt
þá smápolla)
Við erum svo sem ekkert öðruvísi en
Egill Skallagríms
skyldi vera?
Hvað á blessuð bókin að heita:
Hortittasmiðurinn
heillin
Meðgangan var erfið
en
svona
óx
þetta
afkvæmi
Akkúrat svona...
(jú, það má alveg segja
greinarnar bifast!)
´Að gefa út ljóðabók´er eins og að kasta rósarblaði ofan af Mont Blanc og bíða
eftir bergmáli
sagði hin óþekkti höfundur
Hva!
Er ekki nóg að skrifa bara bók!
Getur ekki einhver annar selt hana!
spyr ljúflingur
sest í sófann og bíður....
Erum við nokkuð í stríði?
Kannski ættum við
að fara að
skrifa
VEL ort ljóð
(þulu-bulu-ljóð!
Niðurlæg ei ljóð með
bulli
Norma!
--
Göngutúr í myrkri
mikið af stjörnum
norðurljós
Út skal
snöggvast
að munnhöggvast
(rímar!)
Ástkæra ylhýra málið
Hversvegna fórstu svo fljótt
Jónas,
fótbrotinn og fullur
Hvað hefðir þú lagt
til málanna
Smávinir fagrir
Ástkæra....
Mun vera hægt að
bjóða upp á
´vond´ ljóð í friði
verða þau svo
einhverntíman
betri
Ekkert veitir slíka yfirburði sem það
að vera dauður
sagði Jóhann Sigurjóns
Vér lifum
Yðar tími mun koma.....
Þula-bula
það er ekki málið
ekki alveg málið....
To be or...
samt...
Heill þér Guðmundur
Það er málið
íslensk ljóðagerð
stuðluð!
skrifar Guðmundur
Nú barasta
allt til hópa
ruglukollar
hortittasmiðir
kjaftaþruglarar
Og ÞETTA birtir Mogginn!
Suss og svei!
--
Laxness var óþekkur
Shakespeare einnig
stuðluðu
harla lítið sem ekki neitt
Ég
ljóðskáld
innan gæsalappa
horfi á þessi háu tré
án laufa
vetur
þau bifast til og frá
(kannski má ekki segja bifast?
Haglél skellur á bárujárnið
það er gott að vera innandyra
geng fremur eirðarlaus
um hús mitt
grasekkjan
set upp gluggatjöld
þakin blómum
vermandi
Það er bara ekki hægt að bjóða upp á vond ljóð!
segir Gerður Kristný
Elísabet Jökuls
mæðist í mörgu
segir margt
vill bjarga svooo mörgu
Bónusljóð Andra Snæ aftur!
þrjátíu prósent meira
sama bleika svínið komið enn
(ekki Andri, hann hef ég þekkt
þá smápolla)
Við erum svo sem ekkert öðruvísi en
Egill Skallagríms
skyldi vera?
Hvað á blessuð bókin að heita:
Hortittasmiðurinn
heillin
Meðgangan var erfið
en
svona
óx
þetta
afkvæmi
Akkúrat svona...
(jú, það má alveg segja
greinarnar bifast!)
´Að gefa út ljóðabók´er eins og að kasta rósarblaði ofan af Mont Blanc og bíða
eftir bergmáli
sagði hin óþekkti höfundur
Hva!
Er ekki nóg að skrifa bara bók!
Getur ekki einhver annar selt hana!
spyr ljúflingur
sest í sófann og bíður....
Erum við nokkuð í stríði?
Kannski ættum við
að fara að
skrifa
VEL ort ljóð
(þulu-bulu-ljóð!
Niðurlæg ei ljóð með
bulli
Norma!
--
Göngutúr í myrkri
mikið af stjörnum
norðurljós
Út skal
snöggvast
að munnhöggvast
(rímar!)
Ástkæra ylhýra málið
Hversvegna fórstu svo fljótt
Jónas,
fótbrotinn og fullur
Hvað hefðir þú lagt
til málanna
Smávinir fagrir
Ástkæra....
Mun vera hægt að
bjóða upp á
´vond´ ljóð í friði
verða þau svo
einhverntíman
betri
Ekkert veitir slíka yfirburði sem það
að vera dauður
sagði Jóhann Sigurjóns
Vér lifum
Yðar tími mun koma.....
Þula-bula
það er ekki málið
ekki alveg málið....
To be or...
samt...
Heill þér Guðmundur
Það er málið