Díonysískur heimur
Heimur ófyrirsjáanlegra örlaga
víns og osta
ástar og losta.
Allt er heitt en samt svo kalt
þykir svalt
kaltsvalt en umfram allt falt
Heimur þar sem ástin er föl
náföl
föl fyrir rétt verð, réttum manni
í réttri stöðu
öllum réttum mönnum
höllum undir ódýrar tilfinningar
ást í skyndibitaformi
með frönskum og cokteilsósu
afgreidd af þjónustustúlku sem átti einusinni framtíð
framtíðin var björt
nú er hún dáin
tilfinningalega dáin
spáin: svört  
Sindri
1985 - ...


Ljóð eftir Sindra

Vögguljóð
Tákn tónanna
Kærkomnar tilviljanir
Díonysískur heimur