Draugurinn
Hvar sem ég fer
allt sem ég sé
eru ímyndir af þér

Í núðlupoka,
auglýsingum,
eða bara myndir
vekja upp minningar um þig

Faðmur þinn ég sakna
vernd það veitti mér.
og bara að hanga með þér
það gleði veitti mér.

Hve vænt mig þótti um þig
og hve sárt ég nú sakna þín
Ég sakna að vera í faðmi þínum
og fá kossa frá þér.

Hvenær sem mér leið illa
hvenær sem ég þurfti hjálp
þá komst þú á hvítum hesti
og hjálpaðir mér.

En nú er hjálpin farin
farin á annan stað
nú er sagan búin
ég á ei annað blað.
 
Anna Claessen
1985 - ...
Eins og flestir sjá er þetta ástarsorg. Samdi þetta árið 2003 eftir að hafa hætt með kærasta mínum.


Ljóð eftir Önnu Claessen

Tilhlökkun
Sönn ást
Draugurinn