Lífsinsgangur
Ég er í lausu lofti
á líðandi stundu,
hvorki flýt né flýg,
fótgangandi er.
Staðna um stund,
stend og hugsa,
reyn´ð svara spurningum,
svara hinu óþekkta,
en ekkert finn,
ekki flís af svarinu,
lífinu sem líður,
leikur sér að tímanum,
græt og geng áfram,
ganginn hinn óþekkta,
leiðin liggur niður,
lífið það líður,
að lítilli ljómandi ey,
leggst niður og dey.
á líðandi stundu,
hvorki flýt né flýg,
fótgangandi er.
Staðna um stund,
stend og hugsa,
reyn´ð svara spurningum,
svara hinu óþekkta,
en ekkert finn,
ekki flís af svarinu,
lífinu sem líður,
leikur sér að tímanum,
græt og geng áfram,
ganginn hinn óþekkta,
leiðin liggur niður,
lífið það líður,
að lítilli ljómandi ey,
leggst niður og dey.