Endurtekning.
Sá tími er kominn,þá engin er stund,
til að framkvæma áliðið heit,
með blóðrauðum kvöldhimni þú hnefa þinn steyttir,
þú skildir verja þinn ættjarðar reit.
Hvað höfðum við gefið,á líðandi stund,
nema rétta fram blóðuga hönd,
og blóðið það litar og gefur þér þrá,
að hverfa frá vígvalla strönd.
Við hugum að lykli, hvar liggur sú leið,
í vökulum draumi er aldrei mun rætast,
en vatnið mun koma og fara á ný,
sem upphafið og endirinn mætast.
til að framkvæma áliðið heit,
með blóðrauðum kvöldhimni þú hnefa þinn steyttir,
þú skildir verja þinn ættjarðar reit.
Hvað höfðum við gefið,á líðandi stund,
nema rétta fram blóðuga hönd,
og blóðið það litar og gefur þér þrá,
að hverfa frá vígvalla strönd.
Við hugum að lykli, hvar liggur sú leið,
í vökulum draumi er aldrei mun rætast,
en vatnið mun koma og fara á ný,
sem upphafið og endirinn mætast.