Dyramotta
inni í trosnaðri dyramottunni
slær lítið steinhjarta
löturhægt...
en
hvert fótspor
með allri sinni mold
með öllum sínum steinum
og öllum sínum þunga
tætir hana meira...
á trosnaðri dyramottunni
mátti ennþá sjá móta fyrir
gömlum og slitnum stöfum...
en
hvert fótspor
með allri sinni mold
með öllum sínum steinum
og öllum sínum þunga
tætir þá í burtu...
“Velkomin”
skilst ekki lengur
er ekki lengur
hefur ekki lengur
sína gömlu merkingu...
horfðu á trosnaða dyramottuna
sérðu nokkurs staðar “Velkomin”?
horfðu á trosnaða dyramottuna
og ekki dirfast að koma inn...
...
áður bauð hún alla velkomna
áður bauð hún öllum inn
bauð þeim að þurrkast
og stíga á sig...
en á nokkrum árum
hefur sandurinn
drullan
vatnið
og trampið
eyðilagt mig...
slær lítið steinhjarta
löturhægt...
en
hvert fótspor
með allri sinni mold
með öllum sínum steinum
og öllum sínum þunga
tætir hana meira...
á trosnaðri dyramottunni
mátti ennþá sjá móta fyrir
gömlum og slitnum stöfum...
en
hvert fótspor
með allri sinni mold
með öllum sínum steinum
og öllum sínum þunga
tætir þá í burtu...
“Velkomin”
skilst ekki lengur
er ekki lengur
hefur ekki lengur
sína gömlu merkingu...
horfðu á trosnaða dyramottuna
sérðu nokkurs staðar “Velkomin”?
horfðu á trosnaða dyramottuna
og ekki dirfast að koma inn...
...
áður bauð hún alla velkomna
áður bauð hún öllum inn
bauð þeim að þurrkast
og stíga á sig...
en á nokkrum árum
hefur sandurinn
drullan
vatnið
og trampið
eyðilagt mig...