Hyldýpið
ég finn hvernig botninn gefur sig
og steinarnir renna til undan fótum mér
finn adrenalínið flæða um heilann
finn hræðsluna taka völdin
finn vöðlurnar kæfa hreyfingarnar
og svitann spretta fram á enninu
fleygi frá mér stönginni
reyni að stökkva í land
en hrasa til á grjótinu
fell kylliflatur
með höfuðið á undan
og rotast á botninum.
...
vakna liggjandi nokkru síðar
við róandi fuglasönginn
dýpið ekki meira en svo
að höfuð mitt nær upp úr
læknum.
og steinarnir renna til undan fótum mér
finn adrenalínið flæða um heilann
finn hræðsluna taka völdin
finn vöðlurnar kæfa hreyfingarnar
og svitann spretta fram á enninu
fleygi frá mér stönginni
reyni að stökkva í land
en hrasa til á grjótinu
fell kylliflatur
með höfuðið á undan
og rotast á botninum.
...
vakna liggjandi nokkru síðar
við róandi fuglasönginn
dýpið ekki meira en svo
að höfuð mitt nær upp úr
læknum.