Með stjörnur í augum
stjörnurnar sem skína á dökkum fletinum
fyrir ofan síhugsandi höfuð mitt
eru ekkert annað en kertalogar geimsins
sem munu með tíð og tíma deyja út...
eilífar?
fallegar?
bjartar og
töfrandi?
bara litlir veikburða kertalogar
sem þurfa ekki annað
en örlítinn blástur og örskamma köfnun
til að deyja út og hverfa...
...
þú sagðir að ást okkar væri eilíf
sem stjörnurnar á himninum...
og stjörnurnar hafa öðlast nýja sýn
í einmana huga mínum...
fyrir ofan síhugsandi höfuð mitt
eru ekkert annað en kertalogar geimsins
sem munu með tíð og tíma deyja út...
eilífar?
fallegar?
bjartar og
töfrandi?
bara litlir veikburða kertalogar
sem þurfa ekki annað
en örlítinn blástur og örskamma köfnun
til að deyja út og hverfa...
...
þú sagðir að ást okkar væri eilíf
sem stjörnurnar á himninum...
og stjörnurnar hafa öðlast nýja sýn
í einmana huga mínum...