Fastur í fíkn
fíknin heldur áfram að hrinda mér niður
heyri hvernig hljómar þessi djúpi kliður
frá glösunum detta og brotna á gólfum...
finn nú hvernig vitið veslast upp og eyðist
í vesæld og sút mér daginn eftir leiðist
tómið kemur kaldlynt upp í hjartahólfum...
get ég fyllt mitt hjartatóm af víni
til að loksins sorgir mínar dvíni?
finn að aftur kemur þessi leiði
finn að aftur kemur þessi reiði
því ég aftur öllu viti týni...
áfengissýki
tilverulíki
finn mig falla aftur niður skalann
lífinu gleymi
einmana dreymi
um að komast aftur upp á balann...
ég er ósyndur
ég er staurblindur
fastur í drekkjandi áfengisstraum
gaf frá mér rætur
drap báða fætur
ég skríð um í fíkn og áfengisdaun...
get ég fyllt mitt hjartatóm af víni
til að loksins sorgir mínar dvíni?
finn að aftur kemur þessi leiði
finn að aftur kemur þessi reiði
því ég fjandans viti mínu týni...
...
finn að þessi hugsun hrindir mér í grátinn
getur enginn engill bjargað mér í bátinn?
fastur í fíkn og áfengissýki
fastur í fíkn og tilverulíki
fastur í fíkn og vantar bara vín
finna aftur gleði koma til mín...
fastur í fíkn og vantar bara vín
komdu aftur gleði
komdu til mín...
heyri hvernig hljómar þessi djúpi kliður
frá glösunum detta og brotna á gólfum...
finn nú hvernig vitið veslast upp og eyðist
í vesæld og sút mér daginn eftir leiðist
tómið kemur kaldlynt upp í hjartahólfum...
get ég fyllt mitt hjartatóm af víni
til að loksins sorgir mínar dvíni?
finn að aftur kemur þessi leiði
finn að aftur kemur þessi reiði
því ég aftur öllu viti týni...
áfengissýki
tilverulíki
finn mig falla aftur niður skalann
lífinu gleymi
einmana dreymi
um að komast aftur upp á balann...
ég er ósyndur
ég er staurblindur
fastur í drekkjandi áfengisstraum
gaf frá mér rætur
drap báða fætur
ég skríð um í fíkn og áfengisdaun...
get ég fyllt mitt hjartatóm af víni
til að loksins sorgir mínar dvíni?
finn að aftur kemur þessi leiði
finn að aftur kemur þessi reiði
því ég fjandans viti mínu týni...
...
finn að þessi hugsun hrindir mér í grátinn
getur enginn engill bjargað mér í bátinn?
fastur í fíkn og áfengissýki
fastur í fíkn og tilverulíki
fastur í fíkn og vantar bara vín
finna aftur gleði koma til mín...
fastur í fíkn og vantar bara vín
komdu aftur gleði
komdu til mín...