Norðurljósablik
Aleinn á ferli um miðdimma desembernótt
Allt er svo kyrrt, andrúmsloftið svo hljótt
Stjörnurnar blika í fjarska - eilífir kertalogar
Og í fjarska er eitthvað - eitthvað sem togar...
Norðurljósin blika svo skært í kvöld...
Ég finn leiðina yfir myrka steina - tyrfnar brautir
Kem um síðir inn í dimmar grenitrjáalautir
Þar sem ástirnar fornu áttu sér stað - í laumi
Og skuggar gamalla vera - líða fram í draumi...
Norðurljósin blika svo skært í kvöld...
Ég finn eitthvað elta mig - hljótt en andar heitt
Ég skimast óttasleginn í kring - en sé ekki neitt
Eyk hraðann - fætur mínir lyftast jörðu frá
En það nálgast mig samt - og starir mig á
Norðurljósin blika svo skært í kvöld...
Tárin leka niður kinnar mínar og svitinn bogar
Í hjarta mínu brennur hræðslan - skærir logar
Allt í kring rennur út í eitt og ég hrasa um stein
Nístandi sársaukinn sker holdið - inn við bein...
Norðurljósin blika svo skært í kvöld...
Það hikar og andar svo hátt - síðan það kemur
Skrímslið sem tekur börnin - sparkar og lemur
Ég gægist til baka - býst við að deyja fljótt
En augun grípa í tómt - og allt er orðið hljótt...
Og norðurljósin blika enn skært í kvöld...
...
Fuglarnir byrja að hljóma - syngja sín litlu ljóð
Skíman við sjónarrönd - birtist falleg og rjóð
Ég vakna með stírurnar í augunum - í fögru rjóðri
Ég minnist eltingarleiks - undan skepnu óðri
Hristi svalann úr mér - rís svo hægt á fætur
Brosi - hugsa um drauma þessarar nætur
Drauma er birtust mér - þegar ég svaf svo vært
Undir norðurljósahimni - sem blikaði svo skært...