Þægilegur dofi
svefninn lúrir í sjálfum mér öllum stundum
og deyfðarský hreyfist yfir mannanna grundum
við viljum vera löt og njóta þess að lifa
...undir sæng og heyra tímann tifa...
sofandi í hjarta mér hvílir metnaður og þrá
um að ná langt í draumum sem ég eitt sinn sá
en hugur minn dofinn af undarlegum hvötum
...hendir mér í rúmið - þægilega lötum...
af hverju að vinna
til að auðga fjármagn hinna?
af hverju að þræla
fyrir kapítalista með stæla?
nei!!! ég ligg ennþá latur í alsælunnar hýði
og brott flýgur metnaðardraumurinn fríði
allsber undir sæng með jónu mér til handar
...inn um eyru mín letipúkinn brandörum andar...
ég hlæ upp úr þurru og víman á mig svífur
sálin mín brott frá heimi upp á tinda drífur
þar sit ég loks hátt yfir þrælakyns maurum
...sem vinna fyrir annarra aurapúka aurum...
öllum er sama þó ég sofi
nú heltekur mig - þessi þægilegi dofi
ég mun ekki vinna
til að auka fjármagn hinna
ég elska þennan dofa
svo láttu mig sofa!!!