Upp og niður sálarkvarðann...
...óvarfærni og hrokaglefsur hrista mig allan til
...hreyfingar hugans upp og niður - hlaup til vinstri og hægri
...andvaka ligg ég á gróðurbeði - seint um miðnæturbil
...í sortanum undir mér standa sálir mér lægri...
...þögnin hér drepur snöggt vanlíðan og deyfð
...djúpt í mínum hugsunum - ég reyni að leita leiða
...út úr mínum ógöngum - en sál mín óhreyfð
...mun aldrei fá grið - frið í ríki guðsins reiða...
...þungbrýndir í vítisdvöl - menn hafna út af löstum
...og syndir þeirra fast skráðar - í heimsins stóra kveri
...en hérna ligg ég friðsæll mjög - í fanginu á skógarþröstum
...af friðnum ég svo gagntekinn - hlýja í heimsins freri...
...
en ég get ekki ákveðið
líðan sem að ég helst kýs
ef hjarta mitt er freðið
og sálin mín hún frýs
þá lýst mér ei á blikuna
ef líðanin helst ei út vikuna
...
...sönnun þess að ég er á lífi er klár
...og til vitnis um það hrópa ótal hjartasár
...á meðan ég hlæ og á meðan ég tárast
...mun lífsandi minn ei á svipstundu klárast...
...brosi og tárast en af holdi og blóði
...bugðóttur er þessi langi lífsins slóði
...ég veit það nú loks að í mannanna raunum
...leynist æ gleði - frá sorginni - að launum...