Martýr
...skuggi krossins teygist er glóandi eldhnötturinn leitar niður
ofan á kaldri jörðunni má sjá ævifornar sálirnar biðja enn
horfandi upp til hins vanþakkláta drottnara
sem dó fyrir menn og er dauður enn...
...við höfum dáið og beðið í þínu nafni
skriðið á hnjánum grátandi um náð
í aumu lífi - svo að í himnaríki hafni
sú einmana sál - sem í kristni er skráð...
...förum eftir boðum og bönnum í trú
um að við taki skýjaborgir og sæla
en hvernig mun bregðast við veröld sú
ef öll guðs góðu orð eru eintóm þvæla???
...
á krossinum hangir hann enn
sá frelsari er dó fyrir menn
við tökum hann niður senn...
...
...öll mín sorg sem áður sál mína grætti
hefur nú gert mig að píslarvætti
ég trúi ei lengur á að ofan hjálp berist
allt það slæma er ég vænti - bara gerist...
...svo ef ég stíg framar og læt mig falla
mætti ég sjálfan mig píslarvott kalla?
því ef þunglyndi sorgin sál mína deyða
og líf mitt er uppfyllt af trega og leiða
hvert skal benda fingri - hverjum er um að kenna?
þegar saklausar sálir niður í vítisdvöl renna...
...orðinn að sorgarinnar píslarvætti
kæmi niður aftur ef ég mætti
en nú hangi ég í blóðugum reipum
fastur í dauðans sterku greipum...
á krossi
í dauðans sterku greipum...

Fjallar um þá staðreynd að allir geta orðið píslarvættir (martýrar) í raun, hver á sinn hátt.