Frostþoka
gegnum nasir munn og lungu mín - kuldinn leitar fanga
frostþokan í heimi rís - vetrarnóttin langa
kári vindur - kaldur púki - blæs mér nú í kinn
frostbitnar rósir á vöngum sitja - hrímið kemur inn
ég á hart með að anda - öndunarfærin frjósa
og brátt held ég inn - inn í framhaldslífið ljósa...
aleinn á ferli og klifra upp hnífbratta tinda
engin tré - engin kol - eftir til að kynda
lopavettlingar og peysan köld - frosin af gömlum svita
og rauðbirknir sólargeislar - vangana mína lita...
...
fell að lokum uppgefinn niður - í herðadjúpum snæ
taugaveiklun - kaldhæðni - að lokum nú ég hlæ
deyjandi kaldur í óbyggðum hvítum - einn á ferð á ný
flýg ég upp til skýjanna léttra - þar sem veröldin er hlý...
...
köld frostþokan mig umlukið hefur
líkaminn minn er dofinn og sefur
sálin flakkar létt yfir fögrum dölum
flýgur yfir djúpum og snæviþöktum sölum
þar sem náttúran sín best nýtur
og friðurinn blundar og hrýtur
ég er hamingjusamur dauður hér
þó frost hafi að lokum
kálað mér...
fegurðin er hér...